Sjöunda árið í röð stendur Fótbolti.net fyrir Draumaliðsleik í Pepsi-deild karla. Þriðja árið í röð er harðfiskvinnslan Eyjabiti aðalstyrktaraðili deildarinnar sem rekin er af Fóbolta.net í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta eins og síðustu ár.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í fyrra. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt í ár.
Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!
Fyrsta umferðin í Pepsi-deildinni hefst 27. apríl en þann dag lokar markaðurinn. Skráðu þitt lið til leiks í tæka tíð!
Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Stórglæsileg verðlaun
Eyjabiti er aðalstyrktaraðili leiksins í ár. Eyjabiti er harðfiskvinnsla sem er staðsett á Grenivík.
Þjálfari stigahæsta liðsins í Draumaliðsdeildinni í lok móts fær ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Gaman ferðum sem og harðfisk frá Eyjabita.
Eyjabiti gefur reglulega harðfisk fyrir stigahæstu umferðirnar í sumar auk þess sem að þjálfari draumaliðsins sem er á toppnum eftir 11 umferðir fær tvær fríar gistinætur fyrir 6-8 manns áGrýtubakka við Grenivík. Sjá nánar hér.
Athugasemdir