Manchester City varð Englandsmeistari um helgina eftir að Manchester United tapaði á heimavelli gegn botnliði West Brom. Arsenal missteig sig gegn Newcastle og Crystal Palace og Huddersfield kræktu í mikilvæg stig í fallbaráttunni. Chelsea kom til baka gegn Southampton og Liverpool skoraði þrjú.
Hér er úrvalslið helgarinnar sem valið var af Garth Crooks, sérfræðingi BBC.
Hér er úrvalslið helgarinnar sem valið var af Garth Crooks, sérfræðingi BBC.
Markvörður - Ben Foster (West Brom): Varði skalla Romelu Lukaku á frábæran hátt og hjálpaði sínu liði að halda í veika von um að geta haldið sér í deildinni.
Varnarmaður - Trent Alexander-Arnold (Liverpool): Hefur verið frábær að undanförnu og gæti farið með Englandi í flugvélina til Rússlands.
Varnarmaður - Kevin Long (Burnley): Kom inn fyrir Ben Mee sem var meiddur. Stóð sig afar vel og setti sigurmarkið gegn Leicester.
Varnarmaður - Vincent Kompany (Manchester City): Gríðarlega öflugur í hjarta varnarinnar þegar City vann Tottenham. Þegar hann er heill á hann að spila.
Miðjumaður - Willian (Chelsea): Hefur verið einn besti leikmaður Chelsea á tímabilinu, jafnvel sá besti.
Miðjumaður - Mohamed Diame (Newcastle): Algjörlega magnaður í sigri Newcastle gegn Arsenal. Newcastle er á svakalegu flugi og Benítez að gera glimrandi góða hluti.
Miðjumaður - Eden Hazard (Chelsea): Dapur í fyrri hálfleik en geggjaður í þeim seinni þegar Chelsea vann Southampton eftir að hafa lent tveimur mörkum undir.
Sóknarmaður - Mohamed Salah (Liverpool): Hefur verið ótrúlega öflugur á tímabilinu og raðað inn mörkunum. Engin merki eru um að það muni hætta!
Sóknarmaður - Olivier Giroud (Chelsea): Sýndi sínar bestu hliðar og sá til þess að Chelsea náði þremur stigum með því að breyta leik liðsins.
Athugasemdir