Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mán 16. maí 2016 20:54
Ívan Guðjón Baldursson
1. deild kvenna: Tíu leikmenn ÍR völtuðu yfir Riddarann
Mynd: Katrín J. Björgvinsdóttir
ÍR 5 - 0 Hvíti riddarinn
1-0 Ásgerður Arna Pálsdóttir ('25)
2-0 Heba Björg Þórhallsdóttir ('33)
3-0 Sandra Dögg Bjarnadóttir ('35)
4-0 Sandra Dögg Bjarnadóttir ('40)
5-0 Halla Marinósdóttir ('76)
Rautt spjald: Klara Ívarsdóttir, ÍR ('20)

ÍR mætti Hvíta riddaranum í A-riðli 1. deildar kvenna og byrjaði leikurinn ekki vel fyrir Breiðhyltingana sem misstu Klöru Ívarsdóttur af velli strax á 20. mínútu.

ÍR lét það þó ekki stöðva sig og fimm mínútum eftir rauða spjaldið var Ásgerður Arna Pálsdóttir búin að koma heimamönnum yfir.

Átta mínútum síðar tvöfaldaði Heba Björg Þórhallsdóttir forystuna áður en Sandra Dögg Bjarnadóttir setti tvö og var staðan 4-0 í hálfleik.

Halla Marinósdóttir gerði síðasta mark leiksins á 76. mínútu og góður fimm marka sigur ÍR staðreynd.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner