Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 16. maí 2016 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Leicester fagnaði titlinum - Bolurinn hans Vardy stal senunni
Mynd: Twitter
Leikmenn Leicester City fóru upp á svið í heimaborginni til að fagna með stuðningsmönnum félagsins og borgarbúum sem eru allir í skýjunum eftir að hafa landað ótrúlegum Englandsmeistaratitli.

Menn voru kátir þar sem leikmenn, stjórnendur og starfsmenn félagsins héldu uppi stemningunni og sungu og dönsuðu með stuðningsmönnum.

Jamie Vardy mætti í Chat shit get banged bol, en netverjar komu þessari línu fram í sviðsljósið snemma á tímabilinu.

Vardy hafði tíst þessari línu fyrir nokkrum árum og grófu netverjar hana upp þegar Vardy virtist ekki geta hætt að skora fyrir félagið í haust og bætti markamet deildarinnar með því að skora í ellefu leikjum í röð.



Athugasemdir
banner
banner