Leik Manchester United og Bournemouth sem átti að fara fram í gær, sunnudaginn 15. maí, var frestað eftir að gervisprengja fannst í stúkunni.
Manchester United mætti í heimaleikinn með agnarsmáan vonarneista um að geta stolið 4. sæti deildarinnar og síðasta meistaradeildarsætinu af nágrönnunum í Manchester City.
Manchester United mætti í heimaleikinn með agnarsmáan vonarneista um að geta stolið 4. sæti deildarinnar og síðasta meistaradeildarsætinu af nágrönnunum í Manchester City.
Leiknum var frestað og Man City fékk stig gegn Swansea sem gerir út um meistaradeildarvonir Rauðu djöflanna, sem ætluðu að mæta til leiks með sitt besta byrjunarlið.
Leikurinn verður spilaður annað kvöld, þriðjudaginn klukkan 20:00, en Man Utd keppir í úrslitum enska FA bikarsins fjórum dögum síðar, eða laugardaginn 21. maí. Því gæti Louis van Gaal, stjóri Man Utd, ákveðið að geyma nokkra lykilmenn fyrir bikarúrslitaleikinn.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir