Urædd 0 - 4 Avaldsnes
0-1 M. Mjelde ('18)
0-2 C. Pedersen ('23, víti)
0-3 C. Pedersen ('25)
0-4 H. Hansen ('83)
0-1 M. Mjelde ('18)
0-2 C. Pedersen ('23, víti)
0-3 C. Pedersen ('25)
0-4 H. Hansen ('83)
Hólmfríður Magnúsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir voru í byrjunarliði Avaldsnes sem heimsótti Urædd í efstu deild norska kvennaboltans í dag.
Avaldsnes lenti ekki í erfiðleikum gegn Urædd sem er stigalaust á botni deildarinnar eftir sjö umferðir.
Hólmfríður og félagar gerðu þrjú mörk á fyrstu 25 mínútunum og gerðu þannig snemma út um leikinn.
Íslendingalið Avaldsnes er komið í 2. sætið og er einu stigi á eftir toppliði Lilleström.
Athugasemdir