Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. maí 2018 20:37
Ívan Guðjón Baldursson
Evrópudeildin: Griezmann afgreiddi Marseille
Mynd: Getty Images
Marseille 0 - 3 Atletico Madrid
0-1 Antoine Griezmann ('21)
0-2 Antoine Griezmann ('49)
0-3 Gabi ('89)

Atletico Madrid vann Evrópudeildina í þriðja sinn á tíu árum er liðið lagði Marseille að velli í Lyon.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn en gæðamunur liðanna var augljós þegar Antoine Griezmann nýtti skelfileg varnarmistök Marseille til að koma sínum mönnum yfir, tæpum tuttugu mínútum eftir að Frakkarnir höfðu klúðrað dauðafæri.

Dimitri Payet, skærasta stjarna og fyrirliði Marseille, fór af velli meiddur á 32. mínútu og var Atletico yfir í hálfleik.

Griezmann tvöfaldaði forystuna snemma í síðari hálfleik og tók Atletico öll völd á leiknum í kjölfarið.

Konstantinos Mitroglou átti skalla í stöng á 80. mínútu en nær komst Marseille ekki og gerði Gabi, fyrirliði Atletico, þriðja og síðasta markið á lokamínútunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner