Antoine Griezmann var maður leiksins er Atletico Madrid lagði Marseille að velli í úrslitaleik Evrópudeildarinnar fyrr í kvöld.
Griezmann skoraði fyrstu tvö mörkin í 3-0 sigri í Lyon og er þetta annar titillinn sem hann vinnur með Atletico.
Griezmann skoraði fyrstu tvö mörkin í 3-0 sigri í Lyon og er þetta annar titillinn sem hann vinnur með Atletico.
„Ég yfirgaf heimkynni mín fyrir 14 árum því ég vildi vinna titla. Þetta er annar titillinn minn, með Ofurbikarnum, og vonandi held ég áfram að vinna titla," sagði Griezmann við BeIN Sports að leikslokum.
„Úrslitaleikurinn var frábær. Marseille reyndi að sækja mikið og það hentaði okkur. Við spiluðum okkar leik, vörðumst vel og nýttum mistök þeirra.
„Ég var fullur sjálfstrausts og ískaldur fyrir framan markið."
Athugasemdir