David Moyes verður ekki áfram stjóri West Ham en félagið staðfesti þetta í dag.
Hinn 55 ára gamli Moyes tók við West Ham af Slaven Bilic í nóvember og gerði þá samning út tímabilið.
West Ham vann níu leiki og gerði tíu jafntefli í 31 leik undir stjórn Moyes. Niðurstaðan varð 13. sæti eftir fallbaráttu lengi vel.

Moyes fundaði með forráðamönnum West Ham í gær og nú er ljóst að hann heldur ekki áfram.
Moyes á langan feril að baki sem stjóri en hann hefur áður stýrt Everton, Manchester United, Real Sociedad og Sunderland.
Athugasemdir