Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. maí 2018 08:23
Elvar Geir Magnússon
Silva auðmjúkur eftir að sonur hans fékk loks að fara heim
Starfsfólk sjúkrahússins ásamt feðgunum.
Starfsfólk sjúkrahússins ásamt feðgunum.
Mynd: Twitter
David Silva, leikmaður Manchester City, er fullur þakklætis í garð starfsfólks á sjúkrahúsi á Spáni eftir að sonur hans, Mateo, fékk loksins leyfi til að fara heim.

Mateo er orðinn sex mánaða en hann fæddist langt fyrir tímann og hefur þurft eftirlit allan sólarhringinn síðan hann kom í heiminn.

Silva brosti breidd á myndum þar sem hann tilkynnir að Mateo hafi loks fengið grænt ljós á að fara heim til sín.

„Við erum loksins að fara heim!" skrifaði Silva á samfélagsmiðla.

„Við verðum þessu ótrúlega starfsfólki sjúkrahússins ævinlega þakklát fyrir fagmennsku og góðmennsku sem það hefur sýnt á þessum löngu mánuðum."

Silva hefur ferðast fram og til baka milli Englands og Spánar á þessu tímabili en hann er lykilmaður hjá City sem vann enska meistaratitilinn með miklum yfirburðum.


Athugasemdir
banner
banner
banner