Spánn 2 - 1 Úrúgvæ
1-0 Pedro ('20)
2-0 Roberto Soldado ('32)
2-1 Luis Suarez ('88)
1-0 Pedro ('20)
2-0 Roberto Soldado ('32)
2-1 Luis Suarez ('88)
Spánverjar byrjuðu á sigri í Álfukeppninni í kvöld þegar liðið vann 2-1 sigur á bitlausum Úrúgvæum í B-riðli.
Spánverjar voru með mikla yfirburði í fyrri hálfleik og voru tveimur mörkum yfir í hálfleik eftir að Pedro og Roberto Soldado skoruðu fyrir Heims- og Evrópumeistarana.
Seinni hálfleikur var ansi tíðindalítill þar sem Spánverjar skiptu niður um gír en héldu boltanum vel. Í raun var sigurinn aldrei í hættu en skömmu fyrir leikslok minnkaði Luis Suarez muninn fyrir Úrúgvæ með frábæru marki beint úr aukaspyrnu.
Nær komst Úrúgvæ ekki og lauk leiknum því með 2-1 sigri Spánar. Á morgun heldur Álfukeppnin áfram með leik Tahítí og Nígeríu.




