Haraldur Freyr Guðmundsson fyrirliði Keflavíkur var að vonum ekki ánægður með niðurstöðuna eftir 0-1 tap gegn Stjörnunni í Garðabæ í kvöld. Keflavík var langt í frá lakari aðilinn og hefði líklega átt skilið eitt stig.
Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 0 Keflavík
,,Við spiluðum fínan knattspyrnuleik en fáum ekkert útúr honum enn og aftur. Það er það jákvæða sem við getum tekið úr þessum leik. Við spiluðum á köflum mjög góðan fótbolta og við tökum það með okkur í næsta leik," sagði fyrirliðinn.
Staða Keflavíkur er ekki góð í deildinni og við blasir botnbarátta,
,, Það er grautfúlt að tapa fótboltaleikjum. Við erum búnir að tapa núna fimm leikjum í deildinni og það er of mikið. Við verðum að fara gera einhverjar ráðstafanir til að fá stigin okkar megin."
,,Sjálfstraustið er þokklegt. Það auðvitað minnkar auðvitað með hverjum tapleiknum," sagði Haraldur sem segir ekkert annað í stöðunni en að mæta ferskir á næstu æfingu og ætla sér að gera betur.
Viðtalið við Harald er hægt að sjá í Sjónvarpinu hér að ofan.





















