Ánægður með liðið og hrósaði umgjörðinni í Ólafsvík.
Heimir Guðjónsson var ánægður með að hafa sótt þrjú stig á Snæfellsnes í dag.
"Við settum það upp að byrja með látum og setja á þá pressu, skoruðum snemma og vorum að mér fannst með tögl og haldir í leiknum".
"Við settum það upp að byrja með látum og setja á þá pressu, skoruðum snemma og vorum að mér fannst með tögl og haldir í leiknum".
Hann viðurkenndi að eftir þriðja markið hafi áherslurnar aðeins verið færðar til.
"Jújú, eftir þriðja markið hægðum við aðeins á leiknum, það er mikilvægur leikur í bikarnum gegn Stjörnunni framundan og óneitanlega hugsuðum við aðeins um það"
Heimir var sérstaklega ánægður með umgjörð þá sem boðið var uppá í leiknum.
"Ég vill óska Víking Ólafsvík til hamingju með umgjörðina, hér er frábær völlur og allt eins og best verður á kosið, við getum svo sannarlega ekki kvartað undan neinu í dag"
Í viðtalinu sem fylgir ræðir Heimir líka um næstu rimmu Hafnfirðinga sem er gegn nágrönnunum í Stjörnunni og gefur spyrjanda komment á West Ham söngtaugina sína.























