Tveimur leikjum var að ljúka í Pepsi-deildinni þar sem KR vann öruggan sigur á ÍA á meðan Breiðablik hafði betur gegn Fylki.
KR lagði ÍA að velli í Frostaskjólinu með fjórum mörkum gegn tveimur eftir að hafa lent undir í fyrri hálfleik. Heimamenn hrukku í gang í þeim síðari og skoruðu fjögur mörk.
Andri Adolphsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir ÍA og voru gestirnir yfir í hálfleik en heimamenn sneru blaðinu við á átta mínútna kafla í síðari hálfleik þegar Gunnar Þór Gunnarsson, Kjartan Henry Finnbogason og Gary Martin skoruðu.
Óskar Örn Hauksson fór á kostum í leiknum og lagði upp tvö mörk og skoraði síðan fjórða mark KR á 81. mínútu.
Jón Vilhelm Ákason lagaði stöðuna örlítið fyrir gestina undir lokin og lauk leiknum með 4-2 sigri KR-inga sem eru áfram taplausir á toppi deildarinnar.
Þá marði Breiðablik 1-0 sigur á Fylki í Lautinni en Nichlas Rohde skoraði eina markið seint í leiknum sem tryggði gestunum sigur.
KR 4 - 2 ÍA
0-1 Andri Adolphsson ('27)
1-1 Gunnar Þór Gunnarsson ('61)
2-1 Kjartan Henry Finnbogason ('64)
3-1 Gary Martin ('69)
4-1 Óskar Örn Hauksson ('81)
4-2 Jón Vilhelm Ákason ('90)
Fylkir 0 - 1 Breiðablik
0-1 Nichlas Rohde ('81)


