Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
Sædís Rún: Á okkar degi getum við náð stigum af öllum liðum
Gagnrýnir nýju reglurnar harðlega - „Alveg skelfilegt ef ég á að vera hreinskilin“
Katla Tryggva fyrir Spánarleikinn: Það er alveg hægt að stríða þeim
Hödda langaði að fagna eins og Auðun gegn Haukum - „Allir á bekknum brjálaðir að hann hefði skotið"
Breki Þór: Gott í bankann
Elfar Árni: Það þýðir ekkert að fara að vorkenna sér
Badu: Við sýndum í dag að við erum með góðan hóp
Gunnar Már: Við munum ekki geta hvílt leikmenn
Viðar Örn: Ég hlakka mikið til að spila með honum í næstu leikjum
Óli Flóvents: Þetta mál er að baki
Venni: Þurfum að höndla það betur en síðast
Heimir Guðjóns: Þurfum að finna lausnir
   sun 16. júní 2013 21:37
Magnús Már Einarsson
Þórður Þórðar: Skiptir mig ekki rassgat máli hverjir skora
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, var svekktur eftir að liðið missti niður 1-0 forskot og tapaði 4-2 gegn KR á útivelli í kvöld.

,,Við höfum séð þetta áður í sumar. Við fáum á okkur klafualegt mark eftir hornspyrnu, við eigum að verjast þessu og síðan fáum við þetta í andlitið. Eitt, tvö og þrjú," sagði Þórður eftir leik.

Lestu um leikinn: KR 4 -  2 ÍA

Þórður gerði fimm breytingar á byrjunarliðinu frá því í síðasta leik en Ármann Smári Björnsson, Joakim Wrele og Páll Gísli Jónsson voru frá vegna meiðsla auk þess sem Jan Mikael Berg og Aron Ýmir Pétursson voru teknir úr liðinu.

,,Þrjár af þessum breytingum voru tilkomnar vegna meiðsla og tvær vegna þess að menn hafa ekki verið að standa sig nógu vel. Það gekk vel í 60-70 mínútur í dag en þetta var lélegt eftir það."

Jóhannes Karl Guðjónsson leysti Ármann Smára af í hjarta varnarinnar. ,,Mér fannst Jói standa sig vel. Hann talaði mikið og stjórnaði liðinu vel. Við fengum á okkur fjögur mörk og þá er það ekki nóg."

Gary Martin skoraði gegn sínum gömlu félögum en Þórður segir að það hafi ekki verið extra leiðinlegt. ,,Nei, það skiptir mig ekki rassgat máli hverjir skora, það er bara leiðinlegt að tapa."
Slapp