Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. júní 2018 15:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
David James hrósar Hannesi
Icelandair
Mynd: Orkan
Hannes Þór Halldórsson stal senunni þegar Ísland gerði jafntefli við Argentínu á HM í fótbolta í dag.

Hannes varði víti frá Lionel Messi, einum besta fótboltamanni sögunnar, þegar um 25 mínútur voru eftir. Hannes varði svo aftur frábærlega undir lok leiksins.

Sjá einnig:
Einkunnir Íslands: Hannes maður leiksins

Margir hafa hrósað Hannesi og samfélagsmiðlum og auðvitað er það stórt umræðuefni að hann sé líka leikstjóri. Hann leikstýrði til að mynda auglýsingu Coca Cola fyrir mótið.

Meðal þeirra sem hrósa Hannesi á Twitter er David James, fyrrum markvörður enska landsliðið og Liverpool. James spilaði líka á Íslandi með ÍBV en er í dag þjálfari Kerala Blasters í Indlandi.



Athugasemdir
banner
banner