Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. júní 2018 06:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Odsonne Edouard til Celtic (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Celtic hefur gengið frá kaupum á Odsonne Edouard sem kemur til liðsins frá PSG.

Edouard skrifar undir fjögurra ára samning en kaupin eru þau stærstu í sögu Celtic, hann er sá dýrasti í sögu skosku meistaranna.

Hinn 20 ára gamli leikmaður var á láni hjá Celtic á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði 11 mörk i 29 leikjum. Hann heillaði því Brendan Rodgers og félaga sem ákváðu að festa kaup á leikmanninum.

„Frá augnablikinu sem ég gekk inn hjá Celtic hefur mér liðið eins og heima hjá mér. Það hafa allir boðið mig velkomin og stuðningsmennirnir hafa verið frábærir," sagði Edouard.

Edouard skrifaði undir atvinnumannasamninig hjá PSG árið 2016 og hefur spilað fyrir yngri landslið Frakklands.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner