lau 16. júní 2018 11:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tagliafico: Ísland er erfiður andstæðingur
Icelandair
Mynd: Getty Images
Það styttist óðum í leik Íslands og Argentínu á HM í fótbolta. Leikurinn hefst eftir einn og hálfan tíma.

Nicolas Tagliafico byrjar í vinstri bakverði hjá Argentínu í leiknum. Þessi vinstri bakvörður Ajax býst við erfiðum leik.

„Ísland er erfiður andstæðingur. Þeir treysta mikið á föst leikatriði og langar sendingar," sagði Tagliafico í viðtali við FIFA.

„Það mikilvægasta fyrir okkur er að spila okkar leik, vera með boltann og fara vel með hann. Við verðum að vera duglegir að færa hann og finna plássið. Við verðum að ná því besta út úr Leo (Messi)."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner