Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 16. júlí 2014 22:02
Daníel Freyr Jónsson
Æfingaleikir: Terry og Ivanovic skoruðu í stórsigri Chelsea
Hinn 17 ára gamli Izzy Brown skoraði tvö.
Hinn 17 ára gamli Izzy Brown skoraði tvö.
Mynd: Getty Images
Ensku úrvalsdeildarliðin hefja þessa dagana undirbúningstímabil sín fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni sem hefst eftir tæpan mánuð.

Chelsea spilaði fyrsta æfingaleik sumarsins þegar liðið mætti Wycombe. Alls komu 22 leikmenn þeirra bláklæddu við sögu í leiknum, sem lauk með 5-0 sigri.

Fjölmargir ungir leikmenn voru í byrjunarliði Chelsea, en þó spiluðu menn eins og John Terry, Branislav Ivanovic, Mark Schwarzer og Nemanja Matic í leiknum.

Terry og Ivanovic komust báðir á blað í síðari hálfleik. Þá skoraði efnilegur leikmaður að nafni Izzy Brown tvö mörk, auk þess sem Patrick Bamford eitt.

Brown er einungis 17 ára gamall og eru miklar vonir bundnar við hann á Stamford Bridge.

Chelsea mætir næst Wimbledon á laugardaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner