Njarðvík hefur fengið Andra Fannar Freysson á láni frá Keflavík út tímabilið en þetta staðfesti Guðmundur Steinarsson þjálfari liðsins við Fótbolta.net í kvöld.
Andri Fannar er uppalinn hjá Njarðvík en hann var valinn leikmaður ársins í 2. deildinni þegar hann lék með liðinu árið 2011.
Andri Fannar er uppalinn hjá Njarðvík en hann var valinn leikmaður ársins í 2. deildinni þegar hann lék með liðinu árið 2011.
Eftir að hafa misst mikið úr vegna meiðsla árið 2012 gekk Andri Fannar síðan til liðs við Keflavík.
Í sumar hefur Andri spilað fimm leiki í deild og bikar með Keflavík en þessi 21 árs gamli leikmaður spilaði síðast gegn Fylki 22. júní.
Njarðvíkingar eru í fallsæti í 2. deildinni með 5 stig, sex stigum frá öruggu sæti. Liðið mætir Sindra á laugardag en Andri gæti spilað þann leik.
Athugasemdir