Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 16. júlí 2014 23:40
Elvar Geir Magnússon
Bakkali orðaður við Liverpool
Bakkali á fulltri ferð með PSV.
Bakkali á fulltri ferð með PSV.
Mynd: Getty Images
Belgíski leikmaðurinn Zakaria Bakkali er orðaður við Liverpool í fjölmiðlum í heimalandi sínu. Íþróttablað í Belgíu segir að Bakkali sé að færast nær enska félaginu.

Bakkali vakti athygli með aðalliði PSV Eindhoven í Hollandi á síðasta tímabili, aðeins 17 ára gamall.

Bakkali átti magnaða daga í ágúst í fyrra þar sem hann skoraði í sínum fyrsta leik í Meistaradeildinni og setti svo þrennu gegn NEC .

PSV notaði Bakkali sem vængmann vinstra megin og lék hann í sókninni ásamt Memphis Depay og Jürgen Locadia. Á lokaspretti tímabilsins voru tækifærin af skornum skammti og sagt að Bakkali vilji yfirgefa PSV.

Þessi ungi leikmaður hefur einnig verið orðaður við Valencia og Tottenham.
Athugasemdir
banner
banner
banner