Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 16. júlí 2014 16:30
Daníel Freyr Jónsson
Bobby Zamora verður áfram hjá QPR
Bobby Zamora.
Bobby Zamora.
Mynd: Getty Images
QPR hefur staðfest að framherjinn Bobby Zamora hafi skrifað undir nýjan eins árs samning hjá félaginu.

Zamora tryggði QPR sæti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð með því að skora sigurmark liðsins gegn Derby í umspilsleik um laust sæti í deildinni í vor.

Samningur hans rann út í kjölfarið og var búist við að þessi reynslumikli leikmaður myndi yfirgefa félagið.

Zamora er 33 ára gamall og á að baki yfir 200 leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner