Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. júlí 2014 08:00
Daníel Freyr Jónsson
Burnley kaupir Lukas Jutkiewicz (Staðfest)
Lukas Jutkiewicz.
Lukas Jutkiewicz.
Mynd: Getty Images
Nýliðarnir Burnley í ensku úrvalsdeildinni bættu í dag við leikmannahóp sinn fyrir komandi átök með því að kaupa framherjann Lukas Jutkiewicz frá Middlesbrough.

Þessi 25 ára gamli framherji skrifaði undir þriggja ára samning hjá Burnley. Lék hann sem lánsmaður með Bolton á síðari helming síðustu leiktíðar og skoraði þar 7 mörk í 20 leikjum í Championship-deildinni. Hafði hann einungis skorað eitt mark með Middlesbrough fyrir áramót.

Um er að ræða sjöttu kaup Burnley í sumar, en félagið tryggði sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð með því að hafna í 2. sæti Championship-deildarinnar.

Áður hafði félagið gengið frá kaupum á þeim Matt Gilks, Michael Kightly, Steven Reid, Matt Taylor og Marvin Sordell.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner