Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. júlí 2014 12:25
Magnús Már Einarsson
Heimild: BBC 
Demba Ba á leið til Besiktas
Demba Ba.
Demba Ba.
Mynd: Getty Images
Tyrkneska félagið Besiktas á í viðræðum við Chelsea um kaup á Demba Ba.

Þessi 29 ára gamli leikmaður skoraði 14 mörk í 50 leikjum með Chelsea á síðasta tímabili en hann var í byrjunarliði í 23 leikjum.

Ba var á eftir Samuel Eto´o og Fernando Torres í röðinni en Eto´o er nú horfinn á braut.

Chelsea keypti hins vegar Diego Costa frá Atletico Madrid á 32 milljónir punda í gær auk þess sem Romelu Lukaku er kominn til baka úr láni og því hefur Ba fengið leyfi til að róa á önnur mið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner