4. deildarlið Kára hefur fengið Einar Loga Einarsson á láni frá ÍA.
Einar Logi hefur einungis leikið tvö leiki með ÍA í 1. deildinni í sumar.
Einar Logi hefur einungis leikið tvö leiki með ÍA í 1. deildinni í sumar.
Hann lék 17 leiki með ÍA í Pepsi-deildinni í fyrra þegar liðið féll niður um deild og sumarið áður lék hann alla leiki ÍA í Pepsi-deildinni.
Þetta er því mikill styrkur fyrir Kára sem eru í efsta sæti 4. deildar karla A-riðils með 19 stig eftir sjö umferðir.
Einar Logi mun þó ekki ná að klára tímabilið með Kára þar sem hann er á leið til Bandaríkjanna í skóla í ágúst.
Athugasemdir