Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. júlí 2014 20:30
Daníel Freyr Jónsson
Frank de Boer: Hefði sagt já við Tottenham
Frank de Boer.
Frank de Boer.
Mynd: Getty Images
Hollendingurnin Frank de Boer, stjóri Ajax, segist hafa átt í viðræðum við Tottenham um að taka við liðinu í vor.

De Boer var sterklega orðaður við stjórastöðu enska liðsins eftir brotthvarf Tim Sherwood. Félagið ákvað hinsvegar á endanum að ráða Mauricio Pochettino í starfið, en De Boer segir að hann hefði tekið starfið ef honum hefði boðist það.

,,Ég var mjög nálægt því að fara til Tottenham, en þeir ákvaðu að velja Pochettino," sagði de Boer við AT5.

,,Svona er þetta fyrir fyrirtæki. Á endanum kýs stjórnin og þeir völdu Pochettino."

,,Ef þeir hefðu boðið mér starfið, þá hefði ég örugglega sagt já."
Athugasemdir
banner
banner
banner