Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 16. júlí 2014 10:30
Elvar Geir Magnússon
Hannes Þór að fá nýjan þjálfara
Hannes hefur verið öflugasti leikmaður Sandnes Ulf á tímabilinu.
Hannes hefur verið öflugasti leikmaður Sandnes Ulf á tímabilinu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Asle Andersen hefur verið rekinn sem þjálfari Sandnes Ulf í norsku úrvalsdeildinni.

Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson leikur með Sandnes Ulf og hefur haldið liðinu á floti í mörgum leikjum.

Andersen er allt annað en ánægður með þá ákvörðun stjórnar félagsins að láta sig fara og telur að gerð hafi verið mistök því hann hefði náð að bjarga liðinu frá falli.

Sandnes Ulf er í neðsta sæti deildarinnar með 10 stig, þremur stigum frá öruggu sæti.

Liðið mætir toppliði Molde um næstu helgi.
Athugasemdir
banner
banner
banner