Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. júlí 2014 14:14
Hafliði Breiðfjörð
ÍBV fær tvær frá Bandaríkjunum (Staðfest)
ÍBV er að fá liðsstyrk.
ÍBV er að fá liðsstyrk.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir kvennalið sitt en tveir bandarískir leikmenn eru gengnir til liðs við félagið.

Þetta eru þær Ariana Calderon og Natasha Anasi.

Ariana Calderon er fædd 1990 og spilar sem framliggjandi miðjumaður eða vængmaður. Hún náði ekki til landsins þar sem veður í Sacramento hamlaði flugsamgöngum.

Natasha Anasi fædd 1991 og er varnarmaður. Hún er komin til landsins og verður með liðinu gegn Breiðabliki í 9. umferð Pepsi-deildarinnar í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner