Vængir Júpíters í 4. deildinni hafa fengið Júlíus Orra Óskarsson á láni frá Fjölni.
Júlíus Orri kom við sögu hjá Fjölni í byrjun móts og skoraði í 3-0 sigri liðsins á Víkingi R. í fyrstu umferðinni.
Samtals hefur Júlíus Orri komið við sögu í fimm leikjum í Pepsi-deildinni í sumar.
Júlíus Orri kom við sögu hjá Fjölni í byrjun móts og skoraði í 3-0 sigri liðsins á Víkingi R. í fyrstu umferðinni.
Samtals hefur Júlíus Orri komið við sögu í fimm leikjum í Pepsi-deildinni í sumar.
Júlíus Orri var í láni hjá ÍR í 2. deildinni síðari hlutann á síðasta tímabili.
Vængir Júpíters hafa einnig fengið Ottó Marinó Ingason til liðs við sig en hann lék með Fjölni í 1. deildinni 2010, 2011 og 2012.
Vængir Júpíters leika við Mídas í 4. deildinni í kvöld en Júlíus Orri og Ottó gætu komið við sögu þar.
Athugasemdir