banner
   mið 16. júlí 2014 12:17
Magnús Már Einarsson
Keylor Navas til Real Madrid (Staðfest)
Keylor Navas.
Keylor Navas.
Mynd: Getty Images
Real Madrid hefur keypt markvörðinn Keylor Navas frá Levante en kaupverðið er 10 milljónir evra eða átta milljónir punda.

Þessi 27 ára gamli leikmaður vakti athygli fyrir góða frammistöðu með landsliði Kosta Ríka á HM.

Navas mun berjast við Diego Lopez og Iker Casillas um markvarðarstöðuna hjá Real Madrid.

Navas hefur leikið með Levante undanfarin tvö ár en hann varði áður mark Albacete.
Athugasemdir
banner
banner