Heimild: Football Italia
Roma hefur boðið 30 milljónir evra í argentínska vængmanninn Juan Iturbe, leikmann Verona.
Þar með er ljóst að félagið hefur yfirboðið Juventus í þennan bráðefnilega leikmann, en Verona keypti fyrr í sumar leikmanninn frá Porto eftir að hann stóð sig frábærlega sem lánsmaður hjá félaginu á síðustu leiktíð.

Verona greiddi Porto 15 milljónir punda fyrir Iturbe og er því ljóst að ávöxtun félagsins verður gríðarlega góð á stuttum tíma.
Þrátt fyrir að Verona hefði keypt Iturbe í sumar var ljóst að hann myndi fara til stærri liða, en auk ítölsku félagana hefur hann einnig verið orðaður við Real Madrid og Barelona.
Athugasemdir