KA vann frábæran 4-2 útisigur á ÍA í stórskemmtilegum leik í 1. deild karla í gær. Stórglæsileg mörk voru skoruð í leiknum sem Freyr Brynjarsson lýsti í beinni á SportTv.is.
Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði tvö marka KA í leiknum þar sem liðin skiptust á að skora. Atli Sveinn Þórarinsson og Arsenij Buinickij skoruðu einnig fyrir KA en Garðar Bergmann Gunnlaugsson og Jón Vilhelm Ákason skoruðu fyrir ÍA.
Sigurinn var afar mikilvægur fyrir KA þar sem liðið saxaði mjög á ÍA, sem situr í 2. sæti deildarinnar. KA hefur nú 19 stig í 4. sæti og er einungis tveimur stigum á eftir Skagamönnum.
ÍA 2 - 4 KA
0-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('9)
1-1 Garðar Bergmann Gunnlaugsson ('11, víti)
1-2 Atli Sveinn Þórarinsson ('18)
1-3 Arsenij Buinickij ('49)
2-3 Jón Vilhelm Ákason ('80)
2-4 Hallgrímur Mar Steingrímsson ('90)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir