Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 16. júlí 2014 13:30
Magnús Már Einarsson
Yngri bróðir Götze til Bayern
Mario Götze.
Mario Götze.
Mynd: Getty Images
Mario Götze var hetja Þýskalands gegn Argentínu í úrslitaleik HM um síðustu helgi.

Götze leikur með FC Bayern en yngri bróðir hans Felix Götze hefur nú einnig gengið til liðs við félagið.

Felix er 16 ára gamall en hann mun fara í unglingalið Bayern sem Michael Tarnat þjálfar.

Felix kemur frítt til Bayern en bróðir hans Mario kostaði félagið 37 milljónir evra þegar hann kom frá Borussia Dortmund.

Þriðji bróðirinn, hinn 24 ára gamli Fabian, spilar einnig með SpVgg Unterhaching í þýsku C-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner