„Þær fengu þetta eina færi og bara klára færið sitt, “ sagði Erna Guðrún Magnúsdóttir, fyrirliði FH, um seinni hálfleik liðsins gegn KR í kvöld.
Um spilamennsku liðsins undanfarið hafði hún þetta að segja: „ Við höldum boltanum, við vorum að skapa færin, mér fannst við vera hættulegri. Við er um að taka mikið jákvætt úr leikjunum.“
Um fyrra mark KR sagði hún: „ Aukaspyrna sem að mínu mati ekki aukaspyrna, fer í boltann. Svo er Fríða nátturulega drullusterk í loftinu. Bara við að klára ekki manninn okkar.“
Athugasemdir