„Katrín átti góða fyrirgjöf á mig og ég náði að skalla hann inn,“ sagði Hólmfríður Magnúsdóttir um fyrra mark sitt gegn FH í kvöld, en Hafnfirðingarnir komu í heimsókn í kvöld. Markið var frábær skalli eftir stórglæsilega aukaspyrnu Katrínar Ómarsdóttir.
„Mér fannst völlurinn fínn í dag, gott veður og margir áhorfendur, loksins. Langar að sjá þetta oftar í sumar, að fólk komi að styðja okkur,“ sagði hún um aðstæður í kvöld og hélt áfram: „ Auðvitað er skemmtilegra að spila í svona stemningu, sérstaklega í dag. Að fá þrjú stigí dag var frábært, þetta var liðheildarsigur,“
Athugasemdir