“Ég held að það hafi verið fyrri hálfleikurinn sem drap þetta svolítið fyrir okkur. Byrjuðum alls ekki nógu vel og vissum alveg þegar við komum í hálfleik að við þurftum að snúa þessu algjörlega við. Þora að hafa boltann og spila honum, þá var þetta allt annað í seinni hálfleik. Þannig að ef við hefðum átt tvo þannig hálfleika þá held ég að þetta hefði verið allt annað,” sagði Tinna Bjarndís Bergþórsdóttir, fyrirliði Fylkis, eftir tveggja marka tap gegn Breiðablik í kvöld.
Lestu um leikinn: Fylkir 0 - 2 Breiðablik
Dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu á Fylki á 34. mínútu leiksins eftir tæklingu Brooke Hendrix á Berglindi. Tinna var ekki sammála dómaranum í þessu tilfelli.
“Ég hef bara aldrei séð jafn hreina tæklingu. Ég var alveg í sjokki að þetta hafi verið víti. Ég veit ekki hvort að hann var bara algjörlega á vitlausum stað til að sjá þetta ekki en ég sagði allavega við hann að hann þyrfti að horfa á þetta í kvöld og vonandi að þeir læri bara af þessu.”
Útlitið er ekki bjart hjá Fylki þar sem þær eru nú í næstneðsta sæti deildarinnar, 7 stigum frá KR sem situr í sætinu fyrir ofan og aðeins 5 umferðir eftir. Við spurðum Tinnu útí framhaldið og viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér efst á síðunni.
Athugasemdir