Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 16. ágúst 2017 13:48
Elvar Geir Magnússon
Varð strax uppselt á leik Íslands og Úkraínu
Frá fyrri leik Úkraínu og Íslands í Kænugarði.
Frá fyrri leik Úkraínu og Íslands í Kænugarði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Uppselt er á leik Íslands og Úkraínu sem fram fer á Laugardalsvelli, þriðjudaginn 5. september, kl. 18:45.

Miðasala fór fram í gegnum miðasölukerfi hjá midi.is og varð uppselt á skömmum tíma eftir að sala hófst.

Um er að ræða leik í undankeppni HM en Ísland er með 13 stig á toppi riðilsins ásamt Króatíu.

Fyrri leikur Úkraínu og Íslands var leikinn fyrir luktum dyrum í september á síðasta ári en hann endaði með 1-1 jafntefli þar sem Alfreð Finnbogason skoraði mark Íslands.

Lokakeppni HM verður í Rússlandi á næsta ári og Ísland er í góðum möguleika á að geta tryggt sér sæti á sínu öðru stórmóti.

Næsta verkefni er þó leikur gegn Finnlandi ytra þann 2. september en leikurinn gegn Úkraínu verður aðeins þremur dögum síðar.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner