Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 16. september 2014 17:00
Magnús Már Einarsson
Cambiasso búinn að stimpla sig strax inn hjá Leicester
Mynd: Getty Images
David Nugent, framherji Leicester, segir að Esteban Cambiasso sé strax farinn að láta til sín taka hjá félaginu.

Cambiasso kom inn á sem varamaður í 1-0 sigri Leicester á Stoke um helgina en hann kom til félagsins á dögunum.

,,Hann er gæða leikmaður. Hann getur séð sendingar áður en hann sendir þær," sagði Nugent.

,,Hann er líka mjög öflugur þegar kemur að því að tala. Við erum með ungan hóp sem hefur ekki mikla reynslu af ensku úrvalsdeildinni svo það er frábært að fá Esteban frá Inter Milan þar sem hann vann Meistaradeildina."
Athugasemdir
banner
banner