þri 16. september 2014 11:00
Magnús Már Einarsson
Daníel Leó til Álasund á reynslu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daníel Leó Grétarsson, leikmaður Grindavíkur, mun á sunnudag halda til Noregs þar sem hann verður á reynslu hjá Álasund. Daníel staðfesti þetta í samtali við Fótbolta.net í dag.

Útsendarar frá Álasund sáu Daníel spila með Grindvíkingum í sumar og ákváðu í kjölfarið að bjóða honum að koma til æfinga.

Daníel Leó, sem er 18 ára gamall, mun æfa með Álasund í ellefu daga.

Daníel Leó hefur þrátt fyrir ungan aldur verið fastamaður í liði Grindvíkinga undanfarin tvö tímabil en hann getur spilað bæði á vörninni sem og á miðjunni.

Þá á Daníel Leó tíu leiki að baki með U19 ára landsliði Íslands.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner