Hinn 19 ára gamli Hector Bellerin verður í byrjunarliði Arsenal gegn Borussia Dortmund í Meistaradeildinni í kvöld ef marka má orð liðsfélaga hans Damian Martinez.
Martinez, sem er þriðji markvörður Arsenal, segir að Hector muni byrja í hægri bakverðinum í kvöld í fjarveru Mathieu Debuchy og Calum Chambers.
Martinez, sem er þriðji markvörður Arsenal, segir að Hector muni byrja í hægri bakverðinum í kvöld í fjarveru Mathieu Debuchy og Calum Chambers.
,,Óska @HectorBellerin alls hins besta í sínum fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Arsenal," sagði Martinez á Twitter í dag.
Hector hefur staðið sig vel með unglingaliðum Arsenal auk þess sem hann átti fína spretti með aðalliðinu í Emirates bikarnum í síðasta mánuði.
Athugasemdir