Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 16. september 2014 21:49
Alexander Freyr Tamimi
Jonas Gutierrez með eistnakrabbamein
Jonas er með krabbamein.
Jonas er með krabbamein.
Mynd: Twitter - Norwich
Þær leiðinlegu fréttir bárust í kvöld að Jonas Gutierrez, leikmaður Newcastle sem nú er á láni hjá Norwich, hefur greinst með eistnakrabbamein.

Argentínski landsliðsmaðurinn gekk til liðs við Newcastle árið 2008 frá Mallorca og spilaði 177 leiki fyrir félagið áður en hann var lánaður til Norwich fyrir þetta tímabil.

Fótboltaferill Jonas hefur þó verið settur á pásu núna, en hann greindi frá því í argentínsku sjónvarpi í dag að hann glímdi við krabbamein í eistum.

Hann gengst nú undir lyfjameðferð og vonandi nær hann sér sem allra fyrst.
Athugasemdir
banner
banner
banner