Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 16. september 2014 19:02
Alexander Freyr Tamimi
Kompany: Nauðsynlegt að vinna riðilinn
Kompany vill sleppa við lið eins og Barca í 16-liða úrslitum.
Kompany vill sleppa við lið eins og Barca í 16-liða úrslitum.
Mynd: Getty Images
Vincent Kompany, fyrirliði Manchester City, segir að það sé gríðarlega mikilvægt fyrir lið sitt að vinna E-riðil í Meistaradeildinni.

Englandsmeistararnir hefja leik í riðlinum gegn Bayern Munchen annað kvöld og vonast City til að enda fyrir ofan þá þýsku í þetta skiptið.

,,Við vitum hversu mikið þa ðgetur skemmt fyrir ef maður vinnur ekki riðilinn," sagði Kompany, en í fyrra dróst City gegn Barcelona í 16-liða úrslitum og tapaði.

,Ef við vinnum ekki riðilinn munum við alltaf mæta gríðarlega erfiðum liðum. En við vorum mjög nálægt þessu í fyrra."
Athugasemdir
banner
banner
banner