Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 16. september 2014 10:02
Elvar Geir Magnússon
Stóri Sam: Þetta er flottasta markið til þessa (Sjáðu markið)
Stóri Sam Allardyce.
Stóri Sam Allardyce.
Mynd: Getty Images
Hér að neðan má sjá markið sem Enner Valencia skoraði fyrir West Ham gegn Hull í ensku úrvalsdeildinni í gær. Leikurinn endaði með 2-2 jafntefli en mark Valencia var besti molinn í konfektkassanum.

„Fyrra mark okkar var það flottasta sem ég hef séð á tímabilinu og samt höfum við þegar séð nokkur mögnuð mörk. Hann er nánast í kyrrstöðu en nær þessum krafti og þessari nákvæmni," sagði Stóri Sam Allardyce, stjóri West Ham.

Allardyce segir þó ljóst að varnarleikur West Ham þurfi að batna.

„Það er fínt að spila skemmtilegan sóknarbolta en til að ná árangri þá þarf vörnin að vera í lagi líka."


Athugasemdir
banner
banner