Leicester City tekur á móti West Bromwich Albion í eina leik dagsins í ensku Úrvalsdeildinni.
Leicester er í fallsæti með fimm stig eftir fyrstu sjö umferðirnar en West Brom er um miðja deild með níu stig.
Leicester er í fallsæti með fimm stig eftir fyrstu sjö umferðirnar en West Brom er um miðja deild með níu stig.
Heimamenn í Leicester byrja með Kelechi Iheanacho og Jamie Vardy frammi á meðan Wilfred Ndidi og Vicente Iborra heyja áhugaverða miðjubaráttu við Jake Livermore, Gareth Barry og Grzegorz Krychowiak.
Sigur kemur Leicester úr fallsæti á meðan West Brom getur farið upp um tvö sæti með sigri og verið þá einu stigi á eftir Chelsea, Arsenal og Liverpool.
Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2.
Leicester: Schmeichel, Simpson, Maguire, Morgan, Fuchs, Ndidi, Iborra, Mahrez, Albrighton, Iheanacho, Vardy.
Varamenn: Chilwell, Gray, King, Hamer, Amartey, Slimani, Okazaki.
West Brom: Myhill, Gibbs, Evans, Livermore, Rondon, Barry, Rodriguez, Krychowiak, Chadli, Dawson, Hegazi.
Varamenn: Palmer, Nyom, Yacob, Phillips, Brunt, McClean, McAuley.
Athugasemdir