banner
   mán 16. október 2017 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Marcelo: Ronaldo alltaf til staðar þegar við þörfnumst hans
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo skoraði sitt fyrsta deildarmark á tímabilinu þegar Real Madrid lagði Getafe að velli á laugardaginn.

Marcelo var tekinn í viðtal eftir leikinn og hrósaði hann Ronaldo í hástert.

„Getafe eru mjög erfiðir á útivelli en við stóðum okkur vel í dag og áttum skilið að sigra," sagði Marcelo að leikslokum.

„Það er verið að segja að við höfum skorað rangstöðumark, en það skiptir ekki máli, það sem skiptir máli er að við spiluðum vel og jöfnuðum okkur skömmu eftir að hafa fengið mark á okkur.

„Ronaldo á mikið hrós skilið fyrir allt sem hann hefur gert fyrir félagið, hann er alltaf til staðar þegar við þörfnumst hans."

Athugasemdir
banner
banner