Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 16. október 2017 12:45
Elvar Geir Magnússon
Mata velur besta leikmann sem hann hefur spilað með
Juan Mata.
Juan Mata.
Mynd: Getty Images
Juan Mata hefur opinberað hver sé besti fótboltamaður sem hann hefur spilað með. Þar velur Spánverjinn landa sinn Andrés Iniesta, leikmann Barcelona.

Mata spilaði með Iniesta, sem er 33 ára, hjá spænska landsliðinu.

„Ef ég á að velja besta leikmann sem ég hef spilað með þá vel ég leikmann sem var ekki sérstaklega snöggur, sterkur eða hávaxinn. Iniesta. Hann er leikmaður sem gefur boltann á þig á réttum tímapunkti. Hann gerir þig betri," segir Mata.

„Þetta eru sömu hæfileikar og Zinedine Zidane var með. Gæði hans voru ótrúlega. Þegar ég var í varaliði Real Madrid þá æfði ég með Zidane, Ronaldo, Beckham, Raul. Allt frábærir leikmenn en Zidane lét alla líta betur út."
Athugasemdir
banner
banner
banner