Heimild: Vefur Newcastle
Mike Ashley eigandi Newcastle United sendi frá sér tilkynningu rétt í þessu þess efnis að hann hyggist selja félagið.
Tilkynningin er birt á vef félagsins í dag en ástæða hennar eru vangaveltur í fjölmiðlum á Englandi þess efnis að hann vildi losa sig við eignarhlut sinn.
„Í kjölfar aukinna vangaveltna í fjölmiðlum um framtíð Newcastle United hefur St. James Holdings Limited, eigandi félagsins ákveðið að koma málunum á hreint."
Svona hefst tilkyninngin á vef Newcastle United í dag en Ashley stefnir ekki á að láta málin dragast neitt því hann vonast til að ná að klára söluna fyrir jól.
„Sem eitt af elstu félögum ensku úrvalsdeildarinnar og eitt af þeim sem hefur mestan stuðning á bakvið sig og með hagsmuni stuðningsmanna og aðdáande í Bretlandi og um allan heim er ljóst að Newcastle þarf skýra stefni til bjartrar framtíðar," hélt tilkynningin áfram.
„Til að tryggja félaginu sem best tækifæri til að festa sig í sessi er fjárfesting nauðsynleg til að koma því fram veginn. Þetta er mikilvægur tími í sögu félagsins, núverandi eigandi félagsins er ákveðinnn í því að það sé hagsmunum Newcastle United og stuðningsmanna þess fyrir bestu að setja félagið á sölu."
Athugasemdir