,,Leikurinn leggst mjög vel í mig. Maður óttast ekkert með íslenska landsliðið. Við erum með Gylfa meðal annars og okkur líður drulluvel," sagði Guðmundur Benediktsson við Fótbolta.net í dag.
Gummi er mættur til Tékklands til að lýsa leiknum í kvöld á Bylgjunni.
Gummi er mættur til Tékklands til að lýsa leiknum í kvöld á Bylgjunni.
,,Þetta verður hörkuleikur og ég get sagt ykkur það að þetta fer 2-2. Við skorum alltaf og Tékkar eru á heimavelli þannig að þeir skora líka. Við vinnum þá síðan heima í júní. Það væri mjög sterkt að ná jafntefli hérna."
Tékkland og Ísland eru bæði með níu stig eftir þrjá leiki og Gummi segir að sigur í kvöld fleyti íslenska liðinu langleiðina á EM í Frakklandi árið 2016.
,,Stig væri mjög sterkt en sigur yrði ólýsanlegur. Ef við vinnum þá getum við farið á frönsku námskeið. Þetta er klárt ef við vinnum í Tékklandi í kvöld."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir