Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   sun 16. nóvember 2014 22:59
Magnús Már Einarsson
Kári Árna: Ekki hægt að benda fingrum
Icelandair
Kári Árnason í baráttunni í kvöld.
Kári Árnason í baráttunni í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lestu um leikinn: Tékkland 2 -  1 Ísland

,,Það fór ansi margt úrskeiðis. Þetta gekk bara ekki alveg nógu vel, þetta hékk engan veginn saman. Við fengum voða lítil "break" og við vorum að verjast mjög djúpt í fyrri hálfleik, þeir voru með mjög marga frammi og við vorum djúpir," sagði Kári við Fótbolta.net.

,,Þetta var bara mjög erfitt. Maður vissi ekki hvort maður ætti að fara og "committa" sig eða bara bíða og bíða eftir sendingunni inn fyrir. Þetta var bara mjög erfiður leikur. Svo vorum við svo þreyttir eftir að hafa hlaupið eftir boltanum og þegar maður loksins fékk hann var voðalega lítið "on" annað en að senda langan upp."

,,Við sköpuðum samt nóg af mörkum til að klára þennan leik og mörkin sem við fáum á okkur eru alveg hrikaleg, það er mjög auðvelt að koma í veg fyrir þau, þau voru klaufaleg. Við vorum allir frekar slakir og við vissum það alveg."

,,Við vorum allir frekar slakir og við vitum það alveg. Við erum búnir að vera allir frekar góðir og liðsheildin hefur unnið fyrstu þrjá leikina, og lisðheildin tapaði bara í dag. Það er ekki hægt að benda fingrum að einum eða tveimur."

Athugasemdir
banner
banner