Ragnar Sigurðsson kom íslenska landsliðinu yfir gegn Tékkum á níundu mínútu í kvöld.
Hann skoraði þá með skalla eftir langt innkast en Birkir Bjarnason skallaði boltann laglega á hann.
Hann skoraði þá með skalla eftir langt innkast en Birkir Bjarnason skallaði boltann laglega á hann.
Íslensku leikmennirnir fögnuðu markinu síðan vel og innilega ásamt stuðningsmönnum Íslands í horninu á leikvanginum en yfir 700 Íslendingar eru á leiknum.
Ómar Vilhelmsson ljósmyndari Fótbolta.net náði þessum flottu myndum af markinu og fagnaðarlátunum í kjölfarið.
Athugasemdir